Velkomin til Kaffi Sæla

Kaffi Sæla er til húsa í gamla pósthúsinu að Strandgötu 32, Tálknafirði. Boðið er upp á fljótandi veitingar af mörgu tagi, brauðmeti og aðra létta rétti. Á Kaffi Sæla er öflugt menningarstarf; viðburðir á hverri helgi þar sem trúbadorar, einleikir, ljóðalestrar, spurningakeppnir og fleira skiptist á.

January 2012
M T W T F S S
« Jul    
 1
2345678
9101112131415
16171819202122
23242526272829
3031  

Tálknfirsk tónlistarveisla á Kaffi Sæla

Posted By admin on July 24, 2009

Í tilefni af bæjarhátíinni Tálknafjöri sem haldin verður á Tálknafirði um helgina, verður tálknfirsk tónlistarveisla á veitingastaðnum Kaffi Sæla annað kvöld. Meðal þeirra sem koma fram eru Óli Sveinn og stórsveit Kristjáns Hannessonar, Jónas & Heather og Lalli & Jónas. Það verður farið víða um litróf tónlistarinnar og allir ætti að finna eitthvað við sitt hæfi. Tónlistarveislan stendur frá kl. 23 til 03.

Aðgangur ókeypis

Tálknafjör

Posted By admin on July 21, 2009

Komandi helgi verður nóg um gleði í Tálknafirði. Bæjarhátíðin Tálknafjör hefst með pompi og prakt föstudaginn 24. júlí og verður mikið um dýrðir alla helgina. Við á Kaffi Sæla ætlum ekki að láta okkar eftir liggja og ætlum að tryggja fólki góða skemmtan þegar kvölda tekur og því verður opið til 03 bæði föstudag og laugardag. Að sjálfsögðu sjáum við einnig til þess að enginn verði svangur eða þyrstur. Það verður því um að gera að skella sér á Kaffi Sæla, smakka besta plokkfisk landsins og fá sér einn ískaldan í brakandi blíðunni.
Dagskrá helgarinnar er  enn í mótun en við skellum inn uppfærslu um leið og málin skýrast.

Dagskrá hátíðarinna má svo finna á vef Tálknafjarðar 

talknafjor2

Tónlistarveisla í kvöld!

Posted By admin on July 10, 2009

Í kvöld, 10. júlí, verður haldin tónlistarveisla á Kaffi Sæla, á Tálknafirði, í samvinnu við hátíðina Matur og Menning í Vesturbyggð. Hamsadólgarnir munu þar fremja mikinn tónlistargjörning en einnig munu stíga á stokk bandaríski trúbadorinn Dylan Neal og vestfjarðavinurinn og lagasmiðurinn Toggi. Gleðin hefst klukkan 22 að staðartíma og stendur fram eftir nóttu. Aðgangseyri er stillt í slíkt hóf að aðgangur er ókeypis.

Happy hour frá 21 til 22

Drekktu Betur spurningakeppni - Laugardaginn 20. júní

Posted By admin on June 19, 2009

Laugardaginn 20. júní. Spurningarkeppnin hefst stundvíslega
kl. 21.
2 eru saman í liði og svara 30 spurningum sem vertinn Ársæll spyr. Sigurvegararnir fá sitthvorn 10 bjóra kassann. Þeir sem hafa 18. spurningu rétta fá frían bjór og því alltaf til einhvers að vinna. Liðafjöldi ótakmarkaður.

Drekktu Betur - Reglur

  1. Keppendur eru tveir og tveir saman í liði.
  2. Spurningarnar eru 30 og skrifa keppendur svörin á blað jafnóðum.
  3. Spyrillinn ræður hversu nákvæmt svar hann vill fá en almenna reglan með mannanöfn er sú að sé spurt um íslenskt nafn þarf fullt nafn en með erlent nafn nægir eftirnafnið.
  4. 18. spurningin er “bjórspurning” og þau lið sem hafa hana rétta fá tvo bjóra að keppni lokinni.
  5. Þegar lesnar hafa verið upp 30 spurningar, skiptast liðin á blöðum og spyrillinn les svörin. Liðsmenn merkja við rétt eða rangt svar og telja svo saman hversu mörg réttu svörin eru áður en blaði fer aftur til eiganda.
  6. Það lið sem er með flest rétt svör fær bjórkassa að launum.
  7. Ef tvö eða fleiri lið eru jöfn skal fara fram bráðabani, alveg þar til eitt lið stendur uppi sem sigurvegari.
  8. Nái ekkert lið 15 spurningum réttum bætist kassinn við næstu keppni og munu þá verða tveir kassar í boði.
  9. Ekki er leyfilegt að nota síma eða tölvu á meðan á keppni stendur.  Lið meiga ekki skiptast á svörum. Verði fólk uppvíst að svindli er því vísað úr keppninni.
  10. Ekki er hægt að bera fram kvörtun eftir að keppni formlega lokið.   Spyrill er jafnframt dómari og ræður öllu.

NV Vestfirðir opna á Kaffi Sæla á Tálknafirði í kvöld

Posted By admin on June 19, 2009

Fjallfoss í Dynjanda í Arnarfirði á ljósmynd Ágústs G. Atlasonar

Fjallfoss í Dynjanda í Arnarfirði á ljósmynd Ágústs G. Atlasonar

Ljósmyndasýningin NV Vestfirðir heldur áfram för sinni um Vestfirði.  Næsta stopp verður á Kaffi Sæla á Tálknafirði á föstudagskvöldið.  Kaffihúsið sem opnaði nýlega er rekið af þeim skötuhjúum Ársæli Níelssyni og Auði Birnu Guðnadóttur.  Það er áhugaljósmyndarinn Ágúst G. Atlason sem stendur að sýningarröðinni NV Vestfirðir og á Tálknafirði sýnir hann sjö ljósmyndir prentaðar á striga.  Verkefnið fékk styrk frá Menningarráði Vestfjarða.  Um leið og sýningin opnar á föstudagskvöldið ætlar Guðmundur Hjaltason trúbadúr og félagar sem nefna sig Megakukl að skemmta á staðnum.  Þeir félagar Ágúst Atlason og Guðmundur hafa tekið höndum saman í ferðalagi um Vestfirði með ljósmyndir og tónlist og auðga þannig mannlíf í hinum ýmsu byggðum Vestfjarða í sumar.

Megakukl - Föstudaginn 19. júní

Posted By admin on June 13, 2009

Tónlistarkuklararnir í Megakukl kukla af sinni alkunnu snilld frá klukkan 23.00 og þar til þakið rifnar af kofanum. Aðgangseyri er stillt í kreppuhóf og kostar aðeins kr. 1.000 inn á þennan seiðmagnaða viðburð.

Ekki missa af þessu. Þú sérð eftir því ef þú situr bara heima.

Barinn verður svo að sjálfsögðu “open for buisness” til kl. 03:00. Þannig að enginn ætti að þurfa að fara þyrstur heim að afloknum tónleikum.

megakukl1

Hvalkjötið rýkur út.

Posted By admin on June 13, 2009

Hvalkjötið okkar er orðinn vinsælasti rétturinn. Hann hreinlega rýkur út enda er um hreint lostæti að ræða. Það verður enginn svikinn af þessum rétti og hefur verið haft á orði að það sé vel þess virði að leggja land undir fót til þess eins að bragða á þessum stórkostlega rétti.

Allt að gerast.

Posted By admin on April 18, 2009

Þá er útlit síðunnar tilbúið. Ég þakka Biggunum sem lögðu sitt af mörkum.

Það er allt að smella saman í undirbúningi opnunarinnar. Það er búið að festa kaup á borðum og stólum, leigusamningurinn kominn í póst, drög að matseðli komin á vefin, búið að útvega uppþvottavél, kaffivél og flest af nauðsynlegum borðbúnaði.

Af undirbúningi atburða er það að frétta að Mysterious Marta kíkir með þýskan trúbador í heimsókn í júlí, Svavar Knútur kemur einnig með gesti og spilar fyrir okkur í lok júní auk þess sem Birgir Olgeirsson mun spila á Fyrsta í Opnunarhátíð, föstudaginn 5. júní. Fleiri tónlistarmenn hafa gefið vilyrði fyrir komu sinni þó enn eigi eftir að ganga frá dagsetningum.

Kaffi Sæla

Posted By admin on March 29, 2009

Þessi síða er í vinnslu.

Þegar fram líða stundir munu birtast reglulegar fréttir af gangi mála, matseðill, viðburðadagatal o.fl.